... blogg er fyrir homma!
Ég er byrjaður að vinna í einhverskonar jóla-vinnu hjá Póstmiðstöðinni, með stórmennum eins og Sturlu og Atla, en Davíð var þarna áður en hann fékk nóg og pullaði Bum-Dave á vinnuna.
Er búinn að vera vinna í því að senda póst til útlanda og svoleiðis, með einhverjum Kana, sem er að ná sjöræðisaldrinum, sem kann ekkert á tölvukerfið þarna. Ég hef ósjaldan þurft að dúsa lengur en áætla var, bara afþví að hann klúðraði einhverju! Þessi gaur, var í klaustri í einhver 10-20 ár, áður en hann fluttist til Íslands til að vinna hérna við póstafgreiðslu. Gott markmið það, ekkert ósvipað og ég stefni á ...
Jé.
Núna er mér, og auðvitað Hauskúpuklíkunni, boðið í veislu, og mikinn mannfögnuð 21. des, þar sem við, dauðasyndirnar 7, komum og þurrkum upp veisluna! Stuð.
Talandi um stuð, þá verða Litlu-jól klíkunnar haldin hátíðleg í Kópavoginum, 23. desember, þar sem enginn ætlar heim edrú (nema Helgi, en hann er fullur af bulli hvort eð er), og verður aðfangadagur haldinn hátíðlegur með þynnku!
Það gæti reynst erfitt að toppa síðustu Þorláksmessu, þar sem klíkan stóð fyrir utan Hallgrímskirkju, í fólsku-veðri, og söng ýmisleg falleg lög í anda jólanna. Þar réðust Kriegmaster Már og Dave á grindverk hjá einhverju húsi, og rifu einhver 7-10 spýtu-stykki af grindverkinu, og stormuðu svo inn á Bucchinies í kökur og pípu hjá þeim dópsölum. En til að gera langa sögu stutta, þá reyndi Dave að stela pípunni, var böstaður, náði að smygla einhverju loki af pípunni út, það komst upp, og þeir kenndu mér um, og síðan skeði eitthvað sem ég man ekki, og við sluppum. Like always.
Ég er líka búinn að borga Wacken 2007 (takk Alli!), og þarf bara að landa fluginu og panta á Sleep in Heaven, og ég er farinn til fökking Köben!!! Bara 229 dagar! Vúhú!
En ég var búinn að minnast eitthvað á spennandi ferðalag sem er handan við hornið, sú saga verður að bíða lengur, þar sem það kom smá babb í bátinn, sem verið er að reyna leysa sem fyrst.
Until next time, rock on and stay awesome.